top of page
  • Writer's pictureAndri Már

Ný uppfærsla: Birtingamarkaður (beta) og mælaborð

Updated: Apr 25, 2022

Birtingamarkaður (Beta) 💥

Nýlega settum við í loftið uppfærslu á Púls kerfinu með frumútgáfu (e. beta version) af Birtingamarkaði þar sem hægt er að kaupa auglýsingabirtingar í sjálfsafgreiðslu. Fyrst um sinn verður bara hægt að kaupa birtingar á okkar eigin miðlum, fréttaöppunum Púlsinum og Lummunni. En von bráðar bætast við fleiri miðlar og verður þá einstaklega þægilegt að kaupa birtingar á einum stað og í sjálfsafgreiðslu.


Það er bæði einfalt og frítt að búa til aðgang í Púls kerfinu og að auki fylgir inneign upp á 10.000 birtingar í Lummunni eða Púlsinum þannig að hægt er að prófa Birtingamarkaðinn án kostnaðar!




Púls mælaborð 🧭

Einnig settum við í loftið nýtt mælaborð sem sýnir heildartölfræði allra auglýsinga. Mælaborðið er einstaklega gott til þess að bera saman árangur á milli tímabila og á milli miðla.



Væntanlegt ⏳

Í lok apríl stefnum við á að setja í loftið aðra uppfærslu. Í henni verður hægt að búa til katalóg-reglur fyrir snjallborða til þess að geta auðveldlega sigtað út ákveðnar vörur sem viðskiptavinur vill að birtist í borðanum hverju sinni.

Vertu í bandi! ✉️

Við viljum endilega heyra frá þér, sérstaklega ef eitthvað af eftirfarandi á við um þig:


- vantar betri leið til að sjá um birtingar.

- langar að sjálfvirknivæða auglýsingaframleiðslu.

- átt vefmiðil sem gæti átt heima í Birtingamarkaðnum.


hallo@pulsmedia.is 👋


bottom of page