top of page
  • Writer's pictureAndri Már

Orkan nýtir tækni Púls Media til að þakka viðskiptavinum fyrir að styrkja Bleiku slaufuna


Orkuauglýsing á skjá frá Billboard
Orkuauglýsing á skjá frá Billboard

Auglýsingafyrirtækið Púls Media hefur nú í samstarfi við Orkuna þróað lausn sem gerir þeim kleift að birta styrktarupphæðir frá viðskiptavinum Orkunnar til Bleiku slaufunnar. Í dag renna 5 krónur af hverjum seldum lítra til Bleiku slaufunnar og hefur Púls Media hannað birtingamynd á auglýsingaefni Orkunnar þar sem viðskiptavinir á ferðinni geta séð þá upphæð sem rennur til Bleiku slaufunnar í hverri dælingu. Stafrænir miðlar hafa verið nýttir til að setja fram auglýsingaefnið og er tilgangurinn að sýna fram á að margt smátt gerir eitt stórt.


Helgi Pjetur, framkvæmdastjóri Púls Media
Helgi Pjetur, framkvæmdastjóri Púls Media

„Við erum ótrúlega spennt að vinna með Orkunni að þessu frábæra verkefni fyrir gott málefni. Með því að nýta rauntímaupplýsingar úr kerfum Orkunnar getum við birt skilaboð, á vefmiðlum og umhverfismiðlum, sem þakka viðskiptavinum Orkunnar fyrir þeirra framlag til Bleiku slaufunnar ásamt því að hvetja aðra til að taka þátt,” segir Helgi Pjetur, framkvæmdastjóri Púls Media.


Orkan rekur 72 sjálfsafgreiðslustöðvar um allt land og með þessari herferð er lögð áhersla á að sýna samstöðu í baráttunni gegn krabbameini í konum. Viðskiptavinir á ferðinni geta fylgst með birtingum í allan dag og séð upphæðir sem renna til málefnisins.


Takk Orkubolti! 225 kr. söfnuðust til Bleiku slaufunnar
Takk Orkubolti! 225 kr. söfnuðust til Bleiku slaufunnar

„Orkan hefur verið stoltur styrktaraðili Bleiku slaufunnar í 17 ár og okkur þykir vænt um að geta nýtt allar okkar stöðvar og sýnt viðskiptavinum hversu mikil áhrif þeir hafa. Við sýnum samstöðu og fyllum á tankinn fyrir mikilvæga málefnið sem Bleika slaufan er og með þessa birtingamynd gerir Púls Media okkur kleift að láta verkefnið lifna við í rauntíma,” segir Brynja Guðjónsdóttir, markaðsstjóri Orkunnar.



Andri Már Þórhallsson

Tæknistjóri Púls Media

s. 847-3520


 

bottom of page