top of page
  • Writer's pictureHelgi Pjetur

Sjálfvirk framleiðsla auglýsingaefnis fyrir Bestu deildina

Updated: Apr 25, 2022

Núna í vor fengum við hjá Púls Media að vinna virkilega skemmtilegt verkefni fyrir Bestu deildina sem fór af stað í apríl 2022. Snjallborðalausn Púls er notuð til þess að útbúa megnið af vefauglýsingum Bestu deildarinnar, 100% sjálfvirkt, fyrir innlenda vefmiðla, samfélagsmiðla og umhverfisauglýsingar.


„Head to head“ borðinn


Hugbúnaður Púls Media framleiðir sjálfvirkt rúmlega 4.200 „head2head“ borða fyrir sumarið 2022. 525 leikir í Bestu deild karla og kvenna í stærðum fyrir innlenda vefmiðla, samfélagsmiðla, strætóskýli og billboard.


Kerfið er beintengt við KSÍ og uppfærast borðarnir sjálfvirkt ef leikjum er t.a.m. frestað vegna landsleikja og bikarkeppna. Þegar leikjaskipulag úrslitakeppninnar í Bestu deild karla verður ljóst seinnihluta móts, framleiðir hugbúnaðurinn nýja borða sjálfvirkt.




„Head2head“ borðinn birtist eingöngu ef það eru 5 dagar eða minna í leik, annars taka aðrir borðar við.


„Næstu leikir“ borðinn


Næstu leikir snjallborðinn er hefðbundinn skrunborði í tveimur útgáfum sem sýnir næstu leiki í Bestu deild kvenna og karla. Borðinn uppfærist sjálfvirkt í nokkrum stærðum og er notaður á innlendum vefmiðlum.


Landscape-skrunborðinn er hannaður og útfærður af Púls Media í „vídd“ þannig að efni hans (leikirnir) færast bakvið leikmanninn (módelið) þegar notandinn skrunar til hliðar. (prófaðu endilega ef þú ert í tölvu)


Efni fyrir samfélagsmiðla

Starfsmenn hjá Íslenskum Toppfótbolta hafa aðgang að hugbúnaði Púls Media og geta sótt auglýsingaefni sem kerfið framleiðir sjálfkrafa fyrir samfélagsmiðla. Í skjámyndunum er svokallaður "Logo borði" sem sýnir einfaldlega logo félagana og nöfnin í stóru letri fyrir hvern leik.


Kerfið framleiðir borðana í stærðum fyrir hin ýmsu feed, Instagram stories ofl. Starfsmaður getur skoðað, endurhlaðið (t.d. ef leik hefur skyndilega verið breytt) og sótt auglýsingaefnið.


Púls hefur núþegar búið til sjálfvirka tengingu við auglýsingakerfi Facebook og Instagram og verður á næstu vikum byrjað að dreifa efni sem tengist leikjum sjálfvikrt á samfélagsmiðla.



Hverfisskipt dreifing í strætóskýli með reglum


Með Púls kerfinu getur Besta deildin búið til reglur fyrir ákveðnar auglýsingar og skilað og dreift sjálfkrafa öllu auglýsingaefni sem tengist t.d. heimaleikjum KR, þannig að þeir birtist eingöngu í strætóskýlum í Vesturbæ Reykjavíkur.

Næstu skref

Til stendur að nýta hugbúnað Púls Media til þess að framleiða sjálfkrafa annað efni sem tengist leikjum, úrslitum og tölfræði. Dæmi um efni sem verður framleitt sjálfvirkt á næstu vikum má sjá hér að neðan.




Bókaðu endilega fund með okkur ef lausnir Púls Media gætu hentað þínu fyrirtæki



Helgi Pjetur

Framkvæmdastjóri Púls Media

s. 664-2222


 

bottom of page