top of page
  • Writer's pictureAndri Már

Veðurstýrðar auglýsingar: Krónan leiðir vagninn!

Updated: Jun 22, 2023


Púls Media kynnir byltingakennda uppfærslu í auglýsingatæknikerfi sínu sem gerir auglýsendum kleift að nýta rauntíma-veðurupplýsingar til að ákveða hvernig auglýsingar eru birtar á vef- og umhverfismiðlum. Með þessari viðbót geta auglýsendur aðlagað herferðir sínar á nýstárlegan hátt útfrá núverandi veðurskilyrðum og búið þannig til enn persónulegri upplifun fyrir markhópinn sinn.

Fyrsti viðskiptavinurinn sem nýtir sér þessa nýju tækni er Krónan í samstarfi við Birtingahúsið og Brandenburg sem í nýjustu markaðsherferð sinni notar dæmigerð íslensk veðurskilyrði á léttan og skemmtilegan hátt á umhverfisskiltum og strætóskýlum. Veðurtengdu auglýsingarnar eru sérsniðnar til að passa við tiltekin veðurskilyrði sem býr til miklu meira samhengi í skilaboðum til viðskiptavina Krónunar. Til dæmis, þegar það er rigning þá birta auglýsingaskiltin mann klæddan í regnkápu að grilla kjöt í grenjandi rigningu ásamt skilaboðunum “Dálítil væta? Til í þetta”. Þessi skemmtilega herferð fangar kjarnann í því óútreiknanlega veðri sem Íslendingar þekkja svo vel.

Daði Guðjónsson, markaðsstjóri Krónunnar
„Við erum afskaplega ánægð með samstarf okkar við Púls Media og að vera fyrst til að nýta þessa tækni. Íslenska sumarið er svo óútreiknanlegt og við vildum fanga þann anda í þessari auglýsingaherferð. Með því að sýna ýmsar spaugilegar hliðar af týpísku íslensku sumri í réttu samhengi við núverandi veður náum við að koma á framfæri sérsniðnum skilaboðum, ýta undir vörumerkjavitund og vonandi vekja samtöl. Við hlökkum til að halda samstarfi okkar áfram og gera enn fleiri snjallari auglýsingaherferðir“ sagði Daði Guðjónsson, markaðsstjóri Krónunnar.

Auglýsingatæknikerfi Púls býður auglýsendum upp á nokkrar veðurstillingar til að velja úr, þar á meðal vind, rigningu, skýjafar og hitastig. Auglýsendur geta einnig tilgreint staðsetningar þar sem veðurtengdu stillingarnar eiga að gilda, sem tryggir enn meiri nákvæmni þegar kemur að því að miða á réttan markhóp.


Veðurtengdar auglýsingar hjá Púls Media opna nýjar leiðir fyrir auglýsendur til að tengjast neytendum enn betur. Með því að nýta þær tilfinningar sem flestir Íslendingar bera til veðursins geta auglýsendur á áhrifaríkan hátt sérsniðið skilaboð sín að núverandi veðri og aukið líkur á að viðskiptasamband náist.


Helgi Pjetur, framkvæmdastjóri Púls Media
„Við erum ótrúlega spennt að kynna þessar nýju veðurtengdu auglýsingar sem gerir fyrirtækjum kleift að birta súper viðeigandi skilaboð í sínum herferðum í rauntíma. Með því að nýta þessar veðurupplýsingar geta fyrirtæki búið til mjög grípandi auglýsingar með meira samhengi fyrir sinn markhóp. Við erum stolt af því að Krónan sé fyrsti viðskiptavinurinn sem notar þennan nýja möguleika þar sem Krónan hefur verið einna fremst þegar kemur að innleiðingu tækninýjunga á Íslandi undanfarin ár. Samstarf okkar við Birtingahúsið, sem sér um öll birtingakaup fyrir Krónuna hefur einnig verið gríðarlega farsælt”. sagði Helgi Pjetur, framkvæmdastjóri Púls Media.

Bókaðu endilega fund með okkur ef lausnir Púls Media gætu hentað þínu fyrirtæki



Helgi Pjetur

Framkvæmdastjóri Púls Media

s. 664-2222


 

bottom of page