top of page

Fasteignir - Slideshow

Fasteignasalan Lind






Verkefni | Lýsing

Stærsta snjallborða verkefni Púls Media hingað til er án efa Slideshow Pro borðinn sem er upprunalega þróaður fyrir Fasteignasöluna Lind. Borðinn birtir 5 fyrstu myndir úr eignalýsingu fasteignarinnar ásamt öllum helstu upplýsingum um eignina.


Í borðanum getur viðskiptavinurinn ákveðið hvort hann vilji birta upplýsingar um fasteignasalann sem fer fyrir eigninni eða sérsniðin kynnigartexta eins og t.d „OPIÐ HÚS, fimmtudaginn 14. febrúar á milli 18 og 19“


Viðskiptavinur getur í Púls kerfinu valið hvers konar eignir borðinn sýnir hverju sinni út frá ýmsum síum. T.d. Nýlegar eignir, einbýlishús eða ákveðnin svæði, s.s. póstnúmer eða götuheiti. Það getur verið mjög hentugt þegar leggja á áherslur á ákveðnar eignir til skemmri tíma. Viðskiptavinurinn getur síðan stýrt hvaða borðar eru í birtingu hverju sinni á öllum miðlum án þess að þurfa að hafa samband við hvern og einn miðil.

Hönnun

Púls Media & Birgir Heiðar Guðmunds.

Forritun

Púls Media

Samstarfsaðili

Viltu vita meira um Snjallborða?

​Þú getur líka haft samband við okkur á hallo@pulsmedia.is

Púls bloggið

bottom of page